Langar bara að byrja á því að segja að ég var bara ekki nettengd þann tíma sem ég var fyrir norðan þannig að hef ekkert kíkt hingað inn né skrifað

En já við skötuhjúin fórum norður eftir vinnu á þriðjudeginum fyrir brúðkaup og vorum bara í afslappelse að ganga frá öllu fyrir brúðkaupið .. á miðvikudegi var eitthvað gert á Akureyri, kaupa inn svona smáatriði og þannig (eins og freyðivínið) .. á fimmtudegin var svo farið í bónus og verslað alveg fyrir rúmar 40 þús (minns var alveg andlaus við þetta) .. svo var auðvitað horft á Eurovision í faðmi Akureyrarfjölskyldunnar .. og já fyrr um daginn var komið sér fyrir í sumarbústaðnum við Ytri Vík .. geggjað lítill og kósí bústaður

.. á föstudeginum var svo salurinn skreyttur og tilvonandi brúður fór í dekur með Ástu vinkonu .. geggjað gott !!! Svo á laugardeginum var kökunum hent saman með mikilli hjálp frá tilvonandi eiginmanni .. svo komu tengdó rétt fyrir hádegi og hún byrjaði á sínum kökum. Svo komu m&p frá Húsavík (með Völu í fararbroddi) og var þá farið á "æfingu" í Vallarkirkju .. þá fyrst varð ég spennt/stressuð .. fékk svona fiðrildi í magann og alles

Eftir það var farið í salinn aftur og kökur og brauðréttir kláraðir og beðið eftir Huldu kransagerðarkonu til að setja saman kransakökuna fyrir mig (hvort fólk hafi ekki verið að treysta mér í þetta verkefni veit ég ekki

) .. en kakan var frábær hjá Huldu ! Jæja þá var komið að því að fara í bústaðinn ásamt fullt af fólki (nota bene ekkert allt of stór bústaður .. enda tilgangurinn ekki partýhald) og grillað og horft á Eurovision .. og ég sem var alveg viss að við mundum vinna þetta þetta árið
Eftir það fóru allir í sína kofa, og Gísli fór í Brattavelli og gisti þar og Vala mín gisti hjá mér í Gísla hollu
Jæja sunnudagurinn byrjaði bara rólega eins og hann var eiginlega allan daginn .. Við Vala bara nutum okkar og kjöftuðum og allt það, þangað til Berglind bættist í hópin til að greiða mér og farða .. þegar leið á makeuppið varð þetta hætt að vera minn dagur og þetta var algjörlega Völu dagur

Svo fór mar bara að klæða sig og Vala mér innan handa til að passa að kjóllinn yrði á sínum stað! Rögnvaldur darling sér konur aldrei með sömu augum aftur held ég

.. En já Röggi kom á sínum svaka bónaða bíl (sem sást ekki lengur þar sem það er malarvegur að sumarbústaðnum) og sá til þess að við Vala mundum mæta á réttum tíma í kirkjuna .. allaveganna Vala !!!
Jæja við mættum í kirkjuna svona 14:03 og þá fóru hjólin að snúast og fiðrildin komu aftur í magann. Pabbi sá til þess að ég strunsaði ekki inn kirkjugólfið (mamma hélt nú að það yrði öfugt), og já svo get ég bara ekki lýst tilfinningunni .. það að sjá Gísla bíða eftir mér við altarið var æði, og hann átti alveg erfitt með sig að missa ekki tár .. og að sjá í augum hans hvað honum fannst ég falleg fékk mig til að líða enn betur

.. en já þessari upplifun er erfitt að koma í orð

Athöfnin var svo falleg og söngurinn líka. Eins fullkomið og ég gaf ímyndað mér það

Jæja eftir athöfnina var farið út í skóg rétt hjá og myndir teknar af okkur HJÓNUNUM ! .. Börnin voru svo sem ekki mikið að vilja láta taka myndir af sér og barnapíurnar sem voru með í för algjörlega úti að aka

.. Eftir frábæra stund í Hánefsstaðareit var "rúntað" í félagsheimilið þar sem veislan var. Þar beið okkar hrísgrjónakast og svo þessi frábæra veisla .. stjórnuð af frábærum veislustjórum .. sem þrátt fyrir að hafa einungis átt að segja gjörið svo vel þá voru þau með heljarinnar dagskrá .. sem því miður þau náðu ekki að sýna

.. en ég bíð spennt eftir væntanlegu matarboði með þeim þar sem við fáum að sjá slideshow og fleira

En já svo fóru gestir að drífa sig heim um hálf sex og þá einmitt hugsaði ég "vá erum við svona leiðinleg eða

er fólk að fara strax" þá fékk ég að vita hvað klukkan var og omg hvað tíminn hafði liðið hratt !!! Eftir að hafa opnað pakkana fórum við í bústaðinn og áttum yndislega kvöldstund saman þar sem vinir okkar höfðu sett rósarblöð í heita pottinn og á rúmið, dreyft nammi um borðin og kveikt á kertum .. dísess þetta var allt svo rómó og æðislegt !
En já í alla staði æðislegur tími og frábært "frí" .. fórum svo til Húsavíkur og slöppuðum af þar í tvo daga .. svo á fimmtudaginn var lagt af stað suður, þegar komið var inn á Akureyri fréttum við af þessum gígantíska jarðskjálfta sem reið yfir Selfossina og biðum við því spennt yfir því að komast heim og sjá hvernig húsið okkar hafi lifað af .. okkur til mikillar hamingju datt ein stytta sem missti hausinn og er búið að líma hausinn á

Við sögðum fólki að húsið hafði orðið eins og eftir sprengjuárás EFTIR að við komum heim

Enda erum við búin að vera í 3 daga að taka til .. eða svona eins og hægt er

Svona í endann langar mig að þakka öllum sem komu á norðurlandið til að fagna þessum degi með okkur .. fyrir okkur var dagurinn fullkominn og yndislegt að fólk sá sér fært að koma og eyða deginum með okkur !